VETRAR SÓLSTÖÐU

CACAO ATHÖFN OG TÓNHEILUN

Þér er boðið í hjartnæma og fallega kvöldstund að heiðra vetrarsólstöður saman rétt fyrir hátíðarhöld í Í Óbyggðrasetrinu í Fljótsdalshrepp.

Við hefjum stundina saman að drekka ceremonial cacao sem hjálpar okkur að finna dýpri slökun og hjartaopnun. Heiðrún María leiðir þaðan hópinn í hugleiðslu og tónheilun í anda vetrarsólstaða og hátíða. Að hugleiðslu lokinni færum við okkur út við eldinn að færa þakkir og gjafir.

Að lok athafnar verður boðið að fara í baðhúsið saman í eiðbað, heita og kalda laug.

Vetrar sólstöður er mikilvægur vendipunktur á jörðinni og stjörnuhvolfinnu. Þessum tíma hefur verið fagnað og heiðraður af formæðrum og feðrum okkar í gegnum ár og aldir. Þetta er tími til að koma saman og þakka fyrir okkar innra ljós og líf og mun Heiðrún María leiða hópin í gegnum athöfn í anda vetrarsólstaðanna.

Stöldrum við og kveikjum innra ljósið yfir hátíðina saman í fallegri og nærandi stund fyrir líkama, hug og hjarta.

Nærandi og dásamlegt tækifæri til að fylla bollann þinn fyrir hátíð ljós og friðar.

CACAO ATHÖFN

LEIDD HUGLEIÐSLA

HÁTÍÐAR SÖNGSTUND

TÓNHEILUN SLÖKUN

ELDUR

SAUNA OG HEITUR POTTUR


CACAO

Hreint seremóníal Cacao frá regnskógum Guatemala er kallaður drykkur guðanna í Mayan ættbálkum suður Ameríku. Þessi drykkur er jafnframt stútfullur af andoxunarefnum, steinefnum, vítamínum og er talinn magnesíum ríkasta planta jarðarinnar. Það hefur bæði slakandi áhrif á hug og hjarta og hjálpar þannig að fara í hugleiðsluástand til að fara dýpra inná við í hvíld, mýkt, kyrrð og hlustun. Þú getur lesið meira um cacao HÉR .


TÓNHEILUN OG SÖNGUR

Þú verður leidd/ur i djúpt hugleiðslu ástand og þaðan inní tónheilun. Hér vinnum við með undirmeðvitundina og taugakerfið. Í gegnum söng Heiðrúnar og með ýmsum hljóðfærum ferðumst við dýpra inní vitundina og samstillum þannig líkama, hug og hjarta.

Söngur hefur mikil áhrif á líkamlega og andlega vellíðan, það hafa margar rannsóknir sýnt fram á það hvernig það styrkir lungu og hjarta, örvar innkitlakerfið og dregur úr streytu. Það að syngja saman í hóp eykur tilfinninguna fyrir samfélagi, að tilheyra og deila með öðrum.

SITJA VIÐ ELDINN

Að sitja saman við eldinn flæðir líkamann okkar með róandi hormónum og hafa rannsóknir sýnt fram á að það lækki blóðþrýstinginn okkar.

EIMBAÐ OG HEIT LAUG

Í lokin njótum við hreinsandi og slakandi áhrifa eimbaðsins og laugarinnar í fallegu baðhúsi hjá Óbyggðarsetrinu.

Lyftum okkur upp saman með súkkulaði, slökun og söng.

Ferðast inn á við í hjartaopnandi cacao athöfn í gegnum leidda miðlun að innri hlustun og tengingu.

Svífum saman inn í lifandi tónlist.

Komum saman við eldinn og gefur þakkir og gjafir.

Aukum innri hitann í baðhúsinu í eimbaði og heitri laug.

Vertu hjartanlega velkomin í þessa nærandi og fallegu stund. Þú þarft enga reynslu til að taka þátt.

PRAKTÍSK ATRIÐIR

  • Föstudaginn 20. desember í Óbyggðarsetrinu í Fljótsdalshrepp

  • Byrjum stundvíslega kl 18 og ljúkum athöfn um kl. 21:00

  • Að lokinni athöfn njótum við eimbaðs og laugarinnar

  • Verð 5.000 kr.

  • Innifalið : Cacao athöfn, eldiviður og aðgangur að baðhúsi

  • Að lokinni athafnar og baðhús mun vera til boða súpa og brauð fyrir auka 1.500 kr.

Hvað þarftu meðferðis eða að vita fyrir stundina: 

  • Mælst er með að borða vel um 2 klst fyrir stundina svo þú sért tiltölulega létt/ur í maga í upphafi athafnar

  • Vertu í þægilegum og mjúkum fatnaði, taktu hlý föt til að koma saman úti við eldinn

  • Gott að hafa meðferðis vatnsflösku, púða til að sitja á og teppi.

  • Ef þú ert með hjartasjúkdóm, á þunglyndis- eða kvíðalyfjum er nauðsynlegt að láta Heiðrúnu vita fyrirfram.

FÖGNUM VETRAR SÓLSTÖÐUM SAMAN

Tryggðu þér pláss með því að fylla út formið hér að neðan

Leiðsögumenn Hjartans


  • Hjartahvíslir, Jógína, Tónfreyja og cacao plöntu leiðsögumaður.

    Heiðrún María frá ungum aldri hefur haft mikinn áhuga á líkamlegri og andlegri vellíðan og heilsu. Í dag sérhæfir hún sig í endurkynni við sjálfið í gegnum brú hjartans með tifandi & lifandi nærveru sinni, náttúrutengingu, tónheilun, cacao athöfnum, MBM öndunartækni og jóga.

    Heiðrún María hefur einstaka næmni og líkamnar hvað það er að vera frjáls í sjálfum sér í sannleika. Hún brennur fyrir því.

  • Tónasveinn, Jógi, Ljósvíkingur og áhugamaður um lífið og andann.

    Sveinbjörn er fjölhæfur listamaður sem syngur og spilar á fjölmörg töfrandi hljóðfæri, hann hefur getið af sér gott orð fyrir blíðu rödd sína og tónlistarflutning í hinum ýmsu athöfnum í gegnum árin.

    
Fyrir Sveinbirni er samsöngur og samsköpun í öruggu og fallegu rými ein kröftugasta leiðin til að tilheyra, ein af þessum öflugu leiðarvísum heim í hjartað, þar sem að á meðan að við sköpum og fylgjum innsæinu getum við einnig hlustað á hvað hjartað hvíslar að okkur.