Heim í Hjartað

SUNNUDAGINN 8. MARS

- CACAO SEREMÓNÍA OG TÓNHEILUN -

- SAUNA RITUAL & SÚPA -

HELGAFELL HLÉDRAGSSETUR

SKRÁNING NEÐST Á SÍÐU

Við bjóðum ykkur velkomin í töfrandi dag sem hefst á cacao seremóníu með Heiðrúnu Maríu með valmöguleika á að

Vertu velkomin/nn í einlæga og hjartaopnandi súkkulaði seremoníu þar sem þú verður leidd/ur í kjarna hjartans. Í þessari stund vinnum við með cacao plöntunni til að opna hjartað dýpra, dvelja í innri hlustun og ró í gegnum næma leiðslu Heiðrúnar Maríu.
Þessar stundir bjóða þátttakendum í innra ferðalag í gegnum meðvitaða öndun, orku hugleiðslur og tónheilun.

Heiðrún María mun leiða þig djúpt inní tenginguna við sjálfið í gegnum röddina, innsæið - hér opnast gáttir inní undirmeðvitundina þar sem við endurheimtum orkuna okkar.

Í hröða nútímalegu samfélagi eigum við til að týnum okkur í áreiti, samanburði og skoðunum annarra. Hér í þessum stundum einblínum við á hjartatenginguna okkar og samstillingu við eigin náttúrunnar takt.

Mér finnst ótrúlega nærandi að koma í kakóseremóníur til Heiðrúnar. Þar næ ég að fara djúpt inná við og tengjast kjarnanum mínum. Hún heldur mjög vel utan um rýmið og ég finn mikið öryggi og mýkt. Hún leiðir hugleiðslur af einstakri næmni þar sem gefið er rými til finna fyrir tilfinningum sínum og sínum innri styrk. Það verður alltaf einhver einstök tenging við mig sjálfa og djúpur innri friður. Með því að mæta reglulega í seremóníur er ég tengdari sjálfri mér og fæ meiri skýrleika í lífinu. Finn að ég næ að treysta betur lífinu og er með opnara hjarta.
— Íris Huld

HVAÐ ER SÚKKULAÐI SEREMÓNÍA?

Við hefjum stundina að drekka saman Ceremonial Grade Cacao frá regnskógi Guatemala.

CEREMONIAL CACAO

Er kallaður drykkur guðanna í Mayan ættbálkum suður Ameríku. Þessi drykkur er jafnframt stútfullur af andoxunarefnum, steinefnum, vítamínum og er talinn magnesíum ríkasta planta jarðarinnar. Það hefur bæði slakandi áhrif á hug og hjarta og hjálpar þannig að fara í hugleiðsluástand til að fara dýpra inná við í hvíld, mýkt, kyrrð og hlustun. Þú getur lesið meira um cacao HÉR .


TÓNHEILUN OG SLÖKUN

Í tónheilun er notast við tíðni, hljóma og tóna til að færa okkur í dýpri slökun, jafna orkuflæði líkamans og bæta líkamlega og tilfinningalega vellíðan. Tónheilun getur losað um djúpa streytu og kvíða, róað og nært taugakerfið, bætt svefn, losað um verki, aukið vellíðan og hjálpað líkamanum að heila sig.

Hér ferðumst við djúpt í vitundina og leyfum tónunum að leiða okkur í innra ferðalag.

Það sem þú átt kost á að upplifa:

  • Samhæfingu á milli hugans og hjartans

  • Endurræsingu á lífskrafti

  • Dýpri tengingu við sjálfan þig og æðri mátt

  • Tilfinningalosun

  • Sterkara innsæi og dýpri innsýn

  • Dýpri skynjun og tenging við líkamann

  • Djúpa slökun og hvíld

  • Innri hamingju og frið

  • Dýpri gleði, fegurð og friður í hversdagsleikanum

Mælst er með mæta reglulega fyrir dýpri upplifun og áhrif. Flestir finna áhrifin endast í nokkra daga eða lengur.

PRAKTÍSK ATRIÐI

  • Byrjum kl. 13 - velkomin/nn að mæta um 12:45

  • Við lokum athöfninni kl. 15:30

  • Verð 6.000 kr.

  • Nákvæm staðsetning við skráningu - 45 min keyrsla frá miðsvæði Reykjavíkur

Hvað þarftu meðferðis eða að vita fyrir stundina: 

  • Vertu í þægilegum og mjúkum fatnaði

  • Mælst er með að fasta 1,5 - 2 klst fyrir stundina svo þú sért tiltölulega létt/ur í maga í upphafi athafnar

  • Sleppa öllum mjólkurafurðum og koffíni fyrir stundina

  • Ef þú ert með hjartasjúkdóm, á þunglyndis- eða kvíðalyfjum er nauðsynlegt að láta Heiðrúnu vita fyrirfram.

TRYGGÐU ÞÉR PLÁSS OG SKRÁÐU ÞIG NEÐST Á SÍÐU

HEIM Í HJARTAÐ - Cacao ceremony & Sound healing

SIGN UP FOR 22. NOVEMBER 2025