“Opnaði augun fyrir því hversu mögnuð ég er í raun og veru og að maður þarf að gefa sér tíma fyrir sjálfan sig”
Umsögn frá fyrra námskeiði
ERT ÞÚ TILBÚIN AÐ OPNA HJARTAÐ?
VILTU DVELJA DÝPRA Í ÞÉR HVERSDAGSLEGA?
LIFA FRÁ ÁST EN EKKI ÓTTA?
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST MÁNUDAGINN 11. MARS 2024
4 VIKNA NÁMSKEIÐ þar sem við einblínum á hjartaopnun. Hér færð þú rýmið og tólin til að dýpka sambandið við sjálfan þig til að taka ábyrgð og stjórn á þinni innri hamingju og frið.
YFIR NÁMSKEIÐIÐ komum við nær sjálfum okkur og hjartanu í gegnum hugleiðslur, aðferðir og æfingar fyrir hjartaopnun, orkuvinnu og innsæið. Þetta er ekki aðeins námskeið, þetta er miklu meira en það, þetta eru einstakar stundir sem vinna djúpt í þér. Í hverri stund vinnum við með ceremonial cacao sem býður okkur í dýpri innri opnun og hlustun, hver stund er tileinkuð ákveðu efni (HJARTAÐ, ORKUNÆMNI, INNSÆI, SANNA SJÁLFIÐ). Yfir mánuðinn færð þú heimavinnu og verkefni sem styðja við þína opnun og vakningu í hversdagsleikanum. Við tileinkum okkur einfaldleika og sannleika hér, þetta eru hjartanæmar og nærandi stundir þar sem áherslan er á að gefa þér pláss og tileinka þér heilagan tíma til að dvelja dýpra í þér.
Hjartað er lykillinn að tengingu, frið og hamingju. Lærum hvað veldur því að við lokum því og hvernig við höldum því opnu.
Í örvandi og hröðu samfélagi er mikilvægt að staldra við og róta sig dýpra í kjarnann, hér skoðum við hvernig lífið hefur mótað okkur, hvernig aðstæður og orka hefur áhrif á okkur, hvaðan hegðunnar mynstrin koma og hvað það raunverulega er að lifa með opið hjarta og hvernig við höldum því svoleiðis.
ORKUNÆMNI
Að fá meiri orku með því að skilja orku! Orkulegt ójafnvægi í líkamanum getur verið grundvöllur heilsukvilla og vanlíðan, hvað ef þú lærir að skilja orku og vinna með þína orku? Hér lærir þú hvernig þú hættir að draga í þig orku og tilfinningar annarra, að efla þína eigin orku og upplifa næmni þína sem styrkleika.
INNSÆI
Þegar við opnum hjartað okkur náttúruleg aukaverkunin sterkara innsæi. Þá er spurning hvort við séum að fylgja því? og hvað veldur því að við höfnum því? Öll höfum við innsæi. Innsæi er innri áttavitinn okkar og þegar við erum stillt inná hann getum við átt auðveldara með skýrar ákvarðanir sem leiða að persónulegum vexti og vellíðan. Hér munum við læra hvernig líkaminn og skynjunin er alltaf að gefa okkur merki, hvaðan við tökum ákvarðanir, hvernig við lesum úr líkamanum og hans merkjum og hvað þarf til að fylgja þessum merkjum, hint : traust!
SÖNN NÁTTÚRA
Yfir allt námskeiðið færð þú vettvang til að finna djúpt hver í hjartanu þínu býr og upplifa það hvernig það er að lifa í gegnum hjartað frá fyrstu hendi. Í gegnum athafnirnar og æfingar tengjumst við dýpra okkar sanna eðli og lærum hvað það er sem dregur okkur frá því.
HJARTAOPNUN - ORKUVERA - INNSÆI - SÖNN NÁTTÚRA
11. MARS - 1. APRÍL 2024 - MÁNUDAGSKVÖLD KL. 19:00 - 21:30
Þetta námskeið er tilvalið fyrir þig sem :
Ert á tímamótum
Ert tilbúin/nn að opna hjartað og lifa frjáls frá takmörkum hugans
Upplifir þig dofin/n og aftengda/n
Upplifir þig sem mikla tilfinningaveru og vilt skilja þig dýpra sem orkuveru
Vilt tileinka þér tíma fyrir sjálfan þig að finna fyrir sjálfri/um þér
Vilt kveikja á lífskraftinum og LEIKNUM !
Vilt læra að hlusta á innsæið og byrja að fylgja því
Vilt tengjast þínum æðri mætti og hækka orkuna þína
CEREMONIAL CACAO
Við munum nota þessa fallegu og mögnuðu plöntu til að aðstoða okkur að koma nær í tæra tengingu og hlustun á hjartað.
Hvort sem þú þekkir cacao eða ekki er þetta einstakt tækifæri til að kynnast Cacao enn betur og hvernig þú getur unnið með þeirri plöntu á þínu ferðalagi nær hjartanu þínu.
Ceremonial Cacao hefur verið mikilvægur kennari fyrir mig á minni leið heim í hjartað. Ég hef verið lánsöm um að fá að ferðast til Guatemala síðustu 3 ár að tengjast henni betur og verið að leiða athafnir og námskeið með þessari plöntu síðan 2020.
Til að lesa meira um Cacao HÉR
Við lærum einfaldar öndunaræfingar, æfingar fyrir jarðtengingu, fá að njóta tónheilun og djúpslökun í hverri stund.
Þú verður leidd/ur djúpt inná við í hugleiðslur, lærir að hlusta, finna og hreyfa orku og aðrar æfingar í tengingu við umræðu hverrar stundar.
“Þetta námskeið er enn að ná til mín, því þetta voru ekki bara upplýsingar heldur vann það á breytingum innra með manni. Kennarinn fróðlegur enn um leið sönn i því sem hún gerir. Æfingarnar höfðu djúp og góð áhrif og er ómetanlegt að hafa þær á upptöku áfram. Ég hef farið á mörg námskeið sem margt gleymist eftir á enn mér þykir eins og einhver breyting hafi náðst eða a.m.k vöxtur sem var mjög áhugaverður, frelsandi og góður.”
Ollý Aðalgeirs, frá Kvennakakó netnámskeiði
Heiðrún María
PLÖNTUKENNARI, JÓGI, NÁTTÚRUBARN, ORKUHEILARI
Leit mín að sjálfri mér hófst snemma, ég upplifði mig sem ofurnæma tilfinningaveru sem barn og kunni ekki að finna og vinna með alla þessa dýpt sem ég hafði. Þessi mikla næmni skapaði ýmsa kvilla innra með mér líkamlega og andlega sem ég hef heilað og fundið jafnvægi frá (astmi, þunglyndi, kvíði, blóð sjúkdóm og magavandamál).
Um 17 ára kom jóga í líf mitt og þaðan byrjaði dýpri sjálfsvinna og tenging.
Ég hef ferðast heiminn til að læra með ýmsum kennurum og meisturum um jóga (400 klst. YTT vinyasa og yin yoga), qi gong, orku heilun (empath training, emotion code), heilög plöntu meðal(ceremonial grade cacao), tónheilun og öndun(Metatronic Breathwork). Eins og stendur er ég að klára EmotionCode heilunarmeðferð.
Mest hef ég lært frá náttúrunni, ég dvel mestum stundum þar og hef fundið mína dýpstu heilun með því að tengjast móður náttúru og skaparanum.
Í dag sérhæfi ég mig í hjartatengingu og endurvakningu á lífskraftinum. Að leiðbeina öðrum að vinna með tilfinningarnar sínar, koma frá takmarkandi hugsunarhætti og hegðun til að vakna fyrir eigin sannri náttúru.
Ég hef verið að kenna og halda ýmisa viðburði, námskeið og retreat síðan árið 2018. Ég vinn með cacao, öndun, hugleiðslu, jóga, náttúruöflin, orkuvinnu og tónheilun.
“Þetta er svo mikið meira en námskeið, þetta er yndisleg kvöldstund þar sem ég fékk tækifæri til að kynnast mínu innra sjálfi. Heiðrúnu hefur tekist með hugljúfum hætti að skapa rými þar sem allt tilfinningarófið fær að njóta sín og minn innri styrkur fékk byr undir báða vængi. Ég get ekki þakkað Heiðrúnu nægilega mikið fyrir þessa vegferð, hlakka til að koma á næsta námskeið.”
Umsögn frá fyrru námskeiði
Praktísk atriði
INNIFALIÐ
PDF skjal fyrir kakóbollagerð fyrir heimaiðkun
Heimavinna yfir mánuðinn
Whatsapp/messenger hópur fyrir samskipti í gegnum vikurnar
Cacao, te og létt snarl í lok stundar
Dýnur, teppi og púðar á staðnum
PRAKTÍSK ATRIÐI
4x MÁNUDAGSKVÖLD KL. 19 - 21:30 (10 klst. allt)
DAGS. 11. MARS, 18. MARS, 25. MARS OG 1. APRÍL
Staðsetning í Svövuhúsi, rétt við borgarmörkin í kyrrð og ró og yndislegum sal.
VERÐ 34.000 kr.

“Innsæið, tólin sem hægt er að leita til. En fyrst og fremst minna mig á vikulega að það er hægt að gjörbreyta hugsunarhættinum með því að kafa dýpra og kúpla sig út. Lærði helling um kakóið og hlakka til að leika mér meira með það. Kraftur í fallegum hópi af sterkum og einlægum konum, þvílíkt juicy empowering rými. Svo margt, gæti haldið áfram”
Umsögn frá Kvennakakó námskeiði í Sólum jógastúdíó