Heim í Hjartað
með Heiðrúnu Maríu og Hinrik Ævintýri á norðurlandi
SUNNUDAGINN 8. MARS
- SAUNA RITUAL -
- CACAO SEREMÓNÍA OG TÓNHEILUN -
- LENDING OG SÚPA -
HELGAFELL HLÉDRAGSSETUR, SVALBARÐSEYRI
SKRÁNING NEÐST Á SÍÐU
Velkomin að njóta fallegan dag saman að næra hjartað, huga og líkama.
Dagurinn hefst í SAUNA RITUAL með Hinrik Ævintýri kl. 14-16
Þrjár lotur í hitanum að bræða burt spennu í gegnum gleðina, söng, samveru og svita. Hinrik hefur leitt SAUNA RITUAL um allt land þar sem hann sameinar heilagleikann, hjartað, gleði, hlátur og hágæða næringu.
Næst tekur við CACAO SEREMÓNÍA með Heiðrúnu Maríu kl. 16-18:30
Í gegnum næma leiðslu Heiðrúnar er hópurinn leiddur í innra ferðalag inní dýpt hjartans í gegnum mjúka öndun, leidda hugleiðslu og söng- og tónheilun. Cacao plantan er náttúrulegur og magnaður kennari sem hjálpar okkur að opna hjartað og hækka vitundina í mýkt og mildi.
Í lok athafnar bjóðum við uppá vegan súpu og salat kl. 19
Þessi dagur er fyrir þig að njóta, leika og lifa vel saman.
RÝMISHALDARAR
HEIÐRÚN MARÍA hefur starfa sem jógakennari, heilari og rýmis haldari síðan 2019. Hún leiðir reglulega viðburði, cacao seremóníur, námskeið og náttúru retreat allt með þann einlæga ásetning að bjóða uppá örugg og heilandi rými að opna hjartað og endurvekja sanna sjálfið. Hún hefur ferðast víða um heiminn til að læra með kennurum og meisturum um jóga (400 klst. YTT vinyasa og yin yoga), qi gong (Nicolai Engelbracht), orku heilun (Empath Training, Emotion Code, Body Code), heilög plöntu meðal (Keith Wilson, Júlía Óttars), tónheilun og öndun (Metatronic Breathwork). Þú getur kynnst Heiðrúnu betur og hvað hún býður uppá inná www.heidrunmaria.com
HINRIK ÆVINTÝRI / REWILDING ICELAND er menntaður leiðsögumaður með yfir áratugs reynslu af því að leiða hópa um villta náttúru Íslands. Hinrik sérhæfir sig í að skapa tengsl á milli fólks og náttúrunnar, verndun hennar og andlegri tengingu okkar við alheiminn.
Hann fléttar saman ástríðu sinni fyrir því heilaga og ævintýri lífsins og leiðir sauna- og eld athafnir, kakóseremóníur, kuldameðferðir og náttúru ferðir í gegnum gleði, styrk og einlæga tengingu.
Hann er menntaður í kuldamerðferð með WimHof, unnið með og tekið á móti heilurum um allan heim, lært um heilunnarmátt plantra og Ceremonial Cacao í Guatemala. Hinrik er þekktur fyrir jarðtengda og hlýja nærveru, jákvætt hugarfar og heldur öruggt rými fyrir þátttakendur til að tengjast sjálfum sér í gegnum náttúruna og sjálfið.
Við erum svo spennt að koma norður að leika við ykkur hjartans vinir og skapa töfrandi dag saman!
Það sem þú átt kost á að upplifa:
Samhæfingu á milli hugans og hjartans
Endurræsingu á lífskrafti
Dýpri tengingu við sjálfan þig og æðri mátt
Tilfinningalosun
Sterkara innsæi og dýpri innsýn
Dýpri skynjun og tenging við líkamann
Djúpa slökun og hvíld
Innri hamingju og frið
Dýpri gleði, fegurð og friður í hversdagsleikanum
Mælst er með mæta reglulega fyrir dýpri upplifun og áhrif. Flestir finna áhrifin endast í nokkra daga eða lengur.
HVAÐ ER SÚKKULAÐI SEREMÓNÍA?
Við hefjum stundina að drekka saman Ceremonial Grade Cacao frá regnskógi Guatemala.
CEREMONIAL CACAO
Er kallaður drykkur guðanna í Mayan ættbálkum suður Ameríku. Þessi drykkur er jafnframt stútfullur af andoxunarefnum, steinefnum, vítamínum og er talinn magnesíum ríkasta planta jarðarinnar. Það hefur bæði slakandi áhrif á hug og hjarta og hjálpar þannig að fara í hugleiðsluástand til að fara dýpra inná við í hvíld, mýkt, kyrrð og hlustun. Þú getur lesið meira um cacao HÉR .
TÓNHEILUN OG SLÖKUN
Í tónheilun er notast við tíðni, hljóma og tóna til að færa okkur í dýpri slökun, jafna orkuflæði líkamans og bæta líkamlega og tilfinningalega vellíðan. Tónheilun getur losað um djúpa streytu og kvíða, róað og nært taugakerfið, bætt svefn, losað um verki, aukið vellíðan og hjálpað líkamanum að heila sig.
Hér ferðumst við djúpt í vitundina og leyfum tónunum að leiða okkur í innra ferðalag.
PRAKTÍSK ATRIÐI
Byrjum kl. 14 með SAUNA RITUAL
CACAO SEREMÓNÍA hefst kl. 16
Endum með lendingu með súpu og salati
Verð FULLUR DAGUR (sauna, cacao seremónía og súpa) 13.000 kr.
aðeins 8 pláss fyrir fullan dagVerð fyrir aðeins CACAO SEREMÓNÍU 7.000 kr.
Hvað þarftu meðferðis eða að vita fyrir daginn :
Sundfatnað, handklæði og vatnsflösku fyrir saunu
Sleppa öllum mjólkurafurðum og koffíni fyrir stundina
Mælst með því að vera í þægilegum fatnaði fyrir cacao athöfnina
Ef þú ert með hjartasjúkdóm, á þunglyndis- eða kvíðalyfjum er nauðsynlegt að láta vita fyrirfram.
TRYGGÐU ÞÉR PLÁSS OG SKRÁÐU ÞIG HÉR FYRIR NEÐAN
HEIM Í HJARTAÐ NORÐURLAND
SUNNUDAGUR 8. MARS KL. 14-20
AÐEINS 8 PLÁSS FYRIR FULLAN DAG
EINNIG Í BOÐI AÐ KOMA AÐEINS Í CACAO SEREMÓNÍU